Umsókn um aðgang að Tollalínunni eru sett í mismunandi stöður frá því að sótt er um og þangað til afgreiðslu umsóknar lýkur.
Þetta eru stöðurnar sem umsókn lendir í:
Tölvupóstfang
óstaðfest
Þetta er fyrsta staðan, sem umsókn lendir í. Þegar umsókn er uppfærð
á vef, lendir hún í stöðunni tölvupóstfang
óstaðfest.
Tölvupóstfang
staðfest
Um leið og búið er að uppfæra umsókn á vef, er umsækjanda sendur tölvupóstur
og hann beðinn um að smella á slóð í tölvupóstinum og staðfesta þannig
tölvupóstfang sitt. Um leið og búið er að smella á slóðina, breytist staða
umsóknarinnar í tölvupóstfang staðfest.
Ósamþykkt
Um leið og búið er að staðfesta tölvupóstfang, birtist prentvæn útgáfa
af umsókninni á skjánum. Um leið og smellt er á hnappinn til að prenta
út umsókn, breytist staða umsóknarinnar í ósamþykkt.
Samþykkt
Útprentuð umsókn er send til Tollstjórans í Reykjavík. Ef allar upplýsingar
á umsókn eru réttar, er umsóknin samþykkt og breytist þá staða hennar
í samþykkt.
Hafnað
Útprentuð umsókn er send til Tollstjórans í Reykjavík. Ef umsækjandi
þarf að leiðrétta upplýsingar á umsókn, er sendur tölvupóstur með upplýsingum
um þau atriði, sem leiðrétta þarf. Staða umsóknarinnar breytist við það
í hafnað.
Lokun - tímabundin
Ef loka þarf aðgangi fyrirtækis að Tollalínunni tímabundið, breytist
staða umsóknarinnar í lokun
- tímabundin.
Lokun - endanleg
Ef loka þarf aðgangi fyrirtækis að Tollalínunni varanlega, breytist
staða umsóknarinnar í lokun - endanleg.
Þetta gerist t.d. þegar fyrirtæki segir upp aðgangi sínum að Tollalínunni.