Leit í flutningaskipi
16.12.2019
Föstudaginn 13.12.2019, var framkvæmd umfangsmikil leit í skipinu Mykines er það lagðist að bryggju í Þorlákshöfn.
Leitin var samstarf embætta Tollstjóra og Lögreglustjórans á Suðurlandi. Leitað var í skipinu með sex fíkniefnaleitarhundum, frá Tollstjóra, Lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum og fangelsinu Litla-Hrauni.
Leitað var í farmi sem skipað var upp hérlendis sem og að leit var framkvæmd í flestum rýmum skipsins. Rúmlega tuttugu manns tóku þátt í aðgerðinni. Nokkrir gámar voru teknir til frekari skoðunar á innihaldi. Aðgerðin tókst í alla staði vel og má telja fullvíst að áframhald verði á samstafi sem þessu og reglubundið eftirlit verð með farmflutningum til Þorlákshafnar.
Til baka