Breytingar á tollskrá, aðflutningsgjöldum o.fl.
Varðar m.a. innflytjendur, útflytjendur, tollmiðlara og hugbúnaðarhús, sem selja eða þjónusta hugbúnað til tollskýrslugerðar.
Almennt gildir að breytingarnar taka til allra vara sem ótollafgreiddar eru 1. janúar 2017 nema annað sé tekið fram.
Ábendingar
Útflutningur - Um útflutning gildir: Í útflutningsskýrslu skal nota tollskrárnúmer, skilmála þess og tollafgreiðslugengi sem í gildi er tollafgreiðsludag útflutningsskýrslunnar, en þó skal aldrei miða við nýrri dag en brottfarardag vörusendingar frá Íslandi, sem útflutningsskýrslan tekur til. Sama gildir þegar leiðrétta eða breyta þarf útflutningsskýrslum eftir tollafgreiðslu.
Innflutningur - Þegar leiðrétta eða breyta þarf aðflutningsskýrslum vegna þegar tollafgreiddra innfluttra vörusendinga, t.d. vegna of- eða vangreiddra gjalda, þá bera þær leiðréttingar aðflutningsgjöld skv. tollskrá, lögum og reglugerðum sem í gildi voru tollafgreiðsludaginn eða e.a. bráðabirgðatollafgreiðsludaginn og nota skal tollafgreiðslugengi þess dags. Tollskrárnúmer, skilmálar þeirra, gjöld og tollafgreiðslugengi innfluttra hraðsendinga miðast við þann dag þegar tollgæsla veitti leyfi til að afhenda sendinguna innanlands (langoftast komudagur sendingar til landsins).
Á vef Tollstjóra má skoða annarsvegar tegundir tolla og hinsvegar önnur aðflutningsgjöld og taxta þeirra fyrir og eftir 1. janúar með því að velja viðeigandi viðmiðunardagsetningu. Ennfremur fást upplýsingar um tollskrárnúmer, tolla og gjöld á þeim o.fl. í tollskránni á vef Tollstjóra.
1.
Breyting á tollskrá
Breytingin er skv. auglýsingu nr. 123/2016 um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, m.s.br. (A-deild Stjórnartíðinda). Breytingarnar eru umfangsmiklar en varða inn- og útflytjendur mismikið. Nánari upplýsingar eru á þessari vefsíðu Breytingar á tollskrá 1. janúar 2017.
2.
Lækkun tolla á vörum í tollskrárnúmerum sem heyra undir 25. til 97. kafla
Tollur á vörum í tollskrárnúmerum sem heyra undir 25. til 97. kafla í tollskrá í viðauka I við tollalögin verður 0% og 0 kr./kg.
Heimild: 15. gr. laga nr. 125/2015 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016.
3.
Lækkun tolla á vörum í tollskrárnúmerinu 2005.2003
Tollur á vörum í tollskrárnúmerinu 2005.2003 í tollskrá í viðauka I við tollalögin verður 0% og 0 kr./kg.
Heimild: 13. gr. laga nr. 125/2015 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2016.
4.
Hækkun magntolls (A1) á vörum í tollskrárnúmerum í 4. kafla tollskrár
Tollar hækka á mjólk, rjóma og ostum í neðangreindum númerum:
|
A |
A1 |
E |
|
% |
kr./kg |
% |
0402.1010 |
30 |
574 |
|
0402.1090 |
30 |
574 |
|
0402.2100 |
30 |
717 |
|
0402.2900 |
30 |
715 |
|
0402.9100 |
30 |
715 |
|
0402.9900 |
30 |
715 |
|
0406.2000 |
30 |
715 |
|
0406.3000 |
30 |
715 |
|
0406.4000 |
30 |
832 |
|
0406.9000 |
30 |
832 |
Heimild: 57. gr. laga nr. 102/2016 um breytingu á búvörulögum, búnaðarlögum, tollalögum og lögum um velferð dýra (búvörusamningar, búnaðarlagasamningur).
5.
Kolefnisgjöld á eldsneyti, K* gjöld, hækka
Nefnd kolefnisgjöld verða þessi:
K2 Kolefnisgjald. Gas- og díselolía: 6,30 kr./lítra
K3 Kolefnisgjald. Bensín: 5,50 kr./lítra
K5 Kolefnisgjald. Brennsluolía: 7,75 kr./kg
K6 Kolefnisgjald. Jarðolíugas og annað loftkennt kolvatnsefni: 6,90 kr./kg
Heimild: 16. gr. laga nr. 126/2016 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2017.
6.
Vörugjald af bensíni, LB gjald, hækkar
Gjaldið verður:
LB Vörugjald af bensíni: 26,80 kr./lítra.
Heimild: 11. gr. laga nr. 126/2016 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2017.
7.
Sérstakt vörugjald af eldsneyti, C1 og C2 gjöld, hækka
Gjöldin verða:
C1 Blýlaust bensín: 43,25 kr./lítra
C2 Annað en blýlaust bensín: 45,85 kr./lítra
Heimild: 12. gr. laga nr. 126/2016 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2017.
8.
Olíugjald, C3 gjald, hækkar
C3 Olíugjald á gas- og dísilolíu og ennfremur á steinolíu til ökutækja: 60,10 kr./lítra
Heimild: 13. gr. laga nr. 126/2016 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2017.
9.
Áfengisgjöld, VX, VY og VZ, hækka
Áfengisgjöld verða:
VX Áfengisgjald – Öl o.fl.: 117,25 kr./cl af vínanda umfr. 2,25%
VY Áfengisgjald – Vín: 106,80 kr./cl af vínanda umfr. 2,25%
VZ Áfengisgjald – Annað áfengi: 144,50 kr./cl af vínanda umfr. 0%
Heimild: 3. gr. laga nr. 126/2016 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2017.
10.
Tóbaksgjöld, innflutningur til einkanota, T1 og T2 hækka
Tóbaksgjöldin verða:
T1 Tóbaksgjald – vindlingar: 604,75 kr.á hvern pakka; 20 vindlingar
T2 Tóbaksgjald – annað tóbak: 33,60 kr./gramm
Heimild: 5. gr. laga nr. 126/2016 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2017.
11.
Úrvinnslugjöld, B* gjöld, breytast
Þessar breytingar eru skv. 31. - 40. gr. laga nr. 126/2016 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2017 og breyta lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002.
Við 6. mgr. 7. gr. a laganna bætast eftirfarandi tollskrárnúmer og eru undanþegin úrvinnslugjaldi skv. nánari skilyrðum: 3923.2102 og 3923.2103.
BS gjald á í tollskrárnúmerum 8704.9012 og 8704.9015 fellur niður
BL Í stað „30,00 kr./kg“ hvarvetna í viðauka IV við lögin kemur: 35,00 kr./kg. (T)
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka V við lögin:
BF Í stað „30,00 kr./kg“ hvarvetna kemur: 26,00 kr./kg. (T)
BF Í stað „170,00 kr./kg“ hvarvetna kemur: 150,00 kr./kg. (T)
BE Í stað „42,00 kr./kg“ hvarvetna í viðauka VIII við lögin kemur: 38,00 kr./kg. (T)
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka X við lögin:
BH Í stað „45,50 kr./kg“ hvarvetna kemur: 100,00 kr./kg. (T)
BH Í stað „85,50 kr./kg“ hvarvetna kemur: 188,00 kr./kg. (T)
BH Í stað „101,00 kr./kg“ hvarvetna kemur: 222,00 kr./kg. (T)
BH Í stað „279,50 kr./kg“ hvarvetna kemur: 615,00 kr./kg. (T)
BO Í stað „2,50 kr./stk.“ hvarvetna kemur: 6,00 kr./stk. (S)
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka XI við lögin:
BA Í stað „111,00 kr./kg“ hvarvetna kemur: 44,00 kr./kg. (T)
BA Í stað „332,00 kr./kg“ hvarvetna kemur: 133,00 kr./kg. (T)
BA Í stað „442,00 kr./kg“ hvarvetna kemur: 177,00 kr./kg. (T)
BA Í stað „663,00 kr./kg“ hvarvetna kemur: 265,00 kr./kg. (T)
BA Í stað „884,00 kr./kg“ hvarvetna kemur: 354,00 kr./kg. (T)
BA Í stað „1.767,00 kr./kg“ hvarvetna kemur: 707,00 kr./kg. (T)
BB Í stað „20,00 kr./kg“ hvarvetna kemur: 8,00 kr./kg. (S)
BC Í stað „20,00 kr./kg“ hvarvetna kemur: 8,00 kr./kg. (T)
BC Í stað „28,00 kr./kg“ hvarvetna kemur: 11,00 kr./kg. (T)
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka XII við lögin:
BD Í stað „150,00 kr./kg“ hvarvetna kemur: 360,00 kr./kg. (T)
BD Í stað „250,00 kr./kg“ hvarvetna kemur: 600,00 kr./kg. (T)
BD Í stað „500,00 kr./kg“ hvarvetna kemur: 1.200,00 kr./kg. (T)
BD Í stað „600,00 kr./kg“ hvarvetna kemur: 1.440,00 kr./kg. (T)
BD Í stað „800,00 kr./kg“ hvarvetna kemur: 1.920,00 kr./kg. (T)
BD Í stað „1.200,00 kr./kg“ hvarvetna kemur: 2.880,00 kr./kg. (T)
Eftirfarandi breytingar verða á viðauka XVI við lögin:
BR Í stað „40,00 kr./kg“ í tollskrárnúmerinu 4012.9000 kemur: 8,00 kr./kg. (T)
BS Í tollskrárnúmerum 8703.4021-8703.9020 kemur 1.400 kr./stk. sbr. b-lið 39. gr. laga nr. 126/2016 (T)
Viðauki XIX við lögin breytist:
BU Sjá upphæðir í 40. gr. laga nr. 126/2016 (T)
(S) = taxti gjalds er tengdur gjaldakódanum
(T) = taxti gjaldakóda er mismunandi eftir tollskrárnúmerum
12.
Flutningsjöfnunargjöld á olíuvörum (eldsneyti), J* gjöld, taxtar breytast
Gjöldin verða þessi:
J1 Bifreiðabensín: 0,57 kr. á lítra
J2 Flugsteinolía (þotueldsneyti): 0,12 kr. á lítra
J3 Gasolía: 0,76 kr. á lítra
J4 Flugvélabensín: 0,12 kr. á lítra
J5 Aðrar olíur og blöndur til brennslu: 0,05 kr. á kg.
Heimild: Auglýsing nr. 1164/2016 um flutningsjöfnunargjald á olíuvörum
13.
Breytingar á gjalddögum uppgjörstímabila vegna skuldfærslu aðflutningsgjalda við tollafgreiðslu; fyrirkomulag fært til fyrra horfs frá og með 1. janúar 2017
Á árinu 2016 hafa verið í gildi tímabundið lengri greiðslufrestir (fleiri gjalddagar) á aðflutningsgjöldum, sbr. ákvæði til bráðabirgða nr. XIV við Tollalög nr. 88/2005. Þær reglur falla úr gildi þann 1. janúar 2017.
Frá og með 1. janúar 2017 taka fyrri reglur um uppgjörstímabil og gjalddaga aðflutningsgjalda gildi.
Þeir innflytjendur og tollmiðlarar sem stunda SMT/EDI tollafgreiðslu þurfa sérstaklega að skoða þessar breytingar m.t.t. þess að hugbúnaður þeirra til rafrænnar tollafgreiðslu virki rétt, þ.e. móttaka CUSTAR skeyta og úrvinnsla upplýsinga í þeim. CUSTAR skeytin eru tilkynningar frá Tollstjóra um tollafgreiðslu vörusendingar og skuldfærslu aðflutningsgjalda.
14.
Undanþáguheimild, VSKÖT undanþágukódi, lækkun virðisaukaskatts á rafmagns-, vetnis- eða tengiltvinnbifreiðum, framlengd til 31. desember 2017
Eftirfarandi heimild í ákvæðum til bráðabirgða XXIV í lögum um virðisaukaskatt er framlengd til 31. desember 2017: „Við innflutning og skattskylda sölu nýrrar rafmagns-, vetnis- eða tengiltvinnbifreiðar er heimilt að fella niður virðisaukaskatt eða telja til undanþeginnar veltu fjárhæð að ákveðnu hámarki eins og nánar er kveðið á um í ákvæði þessu.“ Sjá nánar ákvæðið í lögum nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.
Heimild: Sjá um framlenginguna í 8. gr. laga nr. 126/2016 um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2017.
15.
Reglugerðir um tollkvóta
Reglugerð nr. 1004/2016 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Evrópubandalaginu.
Birt 23. nóvember 2015.
Gildir frá 1. janúar 2017 til 31. desember 2017.
Reglugerð nr. 1024/2016 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl.
Birt 28. nóvember 2015.
Gildir frá 1. janúar 2017 til 31. desember 2017.
Reglugerð nr. 1003/2016 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi.
Birt 23. nóvember 2015.
Gildir frá 1. janúar 2017 til 31. desember 2017.
Reglugerð nr. 1216/2016 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum samkvæmt viðauka IVA og IVB við tollalög.
Birt 30. desember 2016.
Gildir frá 1. janúar 2017 til 31. desember 2017.
16.
Lokun á sjálfvirkri EDI/VEF-tollafgreiðslu
Vegna breytinga á gjöldum og tölvuvinnslu verður lokað fyrir sjálfvirka EDI/VEF-tollafgreiðslu hjá Tollstjóra frá kl. 14:00 þann 31. desember 2016 til kl. 12:00 þann 2. janúar 2017.
17.
Tollskrárlyklar til nota í tollskýrslugerðarhugbúnaði
Tollskrárlyklar, sem taka gildi 1. janúar 2017 vegna tollafgreiðslu, verða aðgengilegir hér á vef Tollstjóra 30. desember 2016.
Sérstaklega er bent á að nauðsynlegt er að sækja einnig svokallaða hlutfallstöflu BV og BX úrvinnslugjalda af pappa, pappírs- og plastumbúðum. Sjá nánar vefsíðu tollskrárlykla.
18.
Nánari upplýsingar
Um tæknilega framkvæmd: Upplýsingatæknideild, Rekstrar- og upplýsingatæknisviði, hjá Tollstjóra
ttu[hja]tollur.is eða þjónustuvakt, sími: 560 0505
Um tollamál og tollafgreiðslu: Þjónustuver tollasviðs Tollstjóra, sími 560 0315
Til baka