![](/library/Myndasafn/Frettamyndir-660x220/m%c3%a6lir-t%c3%b6lur-v%c3%adsir.jpg?proc=400x200max)
Álag á þjónustuveri
Vegna mikils álags á þjónustuver innheimtusviðs er svörun fyrirspurna á eftir áætlun. Öllum fyrirspurnum verður svarað, en viðskiptavinir eru vinsamlega beðnir að sýna skilning á lengri biðtíma en venjulega. Vinsamlega sendið ekki sömu fyrirspurnina mörgum sinnum.
Við bendum á að viðskiptavinir Tollstjóra geta séð skuldastöðu sína á þjónustusíðu ríkisskattstjóra www.skattur.is með því að nota rafrænt skilríki eða kennitölu og veflykil til innskráningar (sama veflykil og notaður er þegar skattframtali er skilað).
Þeim sem vilja greiða er bent á upplýsingar um bankareikninga á síðunni: Uppgjör skatta og gjalda.
Vinsamlegast athugið að það verður ekki farið í frekari innheimtuaðgerðir hjá þeim aðilum sem eru með greiðsluáætlanir í gildi þrátt fyrir að þeim hafi borist innheimtubréf.
Til baka