Tollstjóri lengir opnunartíma

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim
Klukka

Tollstjóri lengir opnunartíma

21.01.2015

Breytingar á innheimtu skatta og gjalda

Þær breytingar hafa orðið að frá og með 1. janúar 2015 mun Tollstjóri annast innheimtu skatta og gjalda á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt reglugerð nr. 1060/2014, um innheimtumenn ríkissjóðs. Með ofangreindum breytingum geta þeir sem eiga lögheimili í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði ekki lengur greitt skatta og gjöld hjá sýslumönnum í Kópavogi og Hafnarfirði heldur flyst öll afgreiðsla og þjónusta vegna innheimtunnar til Tollstjóra að Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík. Fyrrgreint á einnig við um innheimtu álagninga fyrri ára. Breyting á innheimtuumdæmi Tollstjóra kemur í kjölfar fækkunar sýslumannsembætta úr 24 í 9 samkvæmt lögum númer 50/2014, um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði.

Tollhúsið

Sjá einnig þessa síðu.

Til baka