Tollverðir haldlögðu afritunarbúnað

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tollverðir haldlögðu afritunarbúnað

09.10.2014

Tollverðir stöðvuðu nýverið erlendan karlmann sem var að koma til landsins og fundu þeir í farangri hans búnað til afritunar á greiðslukortum við notkun þeirra í hraðbönkum. Maðurinn, sem er búlgarskur ríkisborgari, fæddur 1983, var að koma með flugi frá Helsinki, þegar hann var stöðvaður í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.  Honum var ekki hleypt inn í landið eftir að tollverðirnir höfðu fundið búnaðinn.

Lögreglan á Suðurnesjum fór með rannsókn málsins og játaði maðurinn  sök. Honum var síðan frávísað og er hann nú farinn af landi brott.

Búnaðurinn sem haldlagður var:
Aftirunarbúnaður á hraðbanka

Til baka