Álag á þjónustuveri

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Álag á þjónustuveri

18.09.2013

Vegna mikils álags á þjónustuver innheimtusviðs er svörun fyrirspurna á eftir áætlun. Öllum fyrirspurnum verður svarað, en viðskiptavinir eru vinsamlega beðnir að sýna skilning á lengri biðtíma en venjulega. Vinsamlega sendið ekki sömu fyrirspurnina mörgum sinnum.

Við bendum á að viðskiptavinir Tollstjóra geta séð skuldastöðu sína á þjónustusíðu ríkisskattstjóra www.skattur.is með því að nota kennitölu og veflykil til innskráningar (sama veflykil og notaður er þegar skattframtali er skilað).

Þeim sem vilja greiða er bent á upplýsingar um bankareikninga á síðunni: Uppgjör skatta og gjalda.

Til baka