Rúm 160 kíló af verðmætu þýfi haldlögð

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Rúm 160 kíló af verðmætu þýfi haldlögð

28.05.2013

Tollverðir fundu rúm 160 kíló af meintu þýfi í Norrænu við brottför skipsins frá Seyðisfirði í síðasta mánuði. Um var að ræða rúmlega 400 keramikeiningar, úr nýjum og notuðum hvarfakútum, sem tveir erlendir karlmenn hugðust flytja úr landi. Hið meinta þýfi var haldlagt á staðnum.

Hvarfakútar gegna því hlutverki að hreinsa útblástursloft bifreiða og draga úr skaðsemi þess fyrir umhverfið. Þynnur úr afar verðmætum málmum, svo sem platínu og palladíum, sem eru til dæmis einnig notaðir til skartgripagerðar, skapa þessa eiginleika hvarfakútanna. Í hverjum hvarfakút geta verið þrjár til fimm keramikeiningar og með ákveðnum aðferðum er unnt að einangra þessa góðmálma, sem þær hafa að geyma. Mennirnir tveir höfðu sankað að sér 128 einingum úr nýjum hvarfakútum og 273 úr notuðum kútum. Kaupverð hvers kúts getur hlaupið á tugum þúsunda króna.

Tollverðir unnu þetta verkefni í samvinnu við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu, sem rannsakar nú málið. Tollstjóri veitir því ekki frekari upplýsingar um það.

Keramik

Keramikkubbarnir, sem mennirnir höfðu sankað að sér úr nýjum og notuðum hvarfakútum, voru 401 talsins.

Til baka