Tilkynning nr. 1 um breytingar á tollskrá, aðflutningsgjöldum o.fl. við tollafgreiðslu vara sem taka gildi 1. janúar 2012

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tilkynning nr. 1 um breytingar á tollskrá, aðflutningsgjöldum o.fl. við tollafgreiðslu vara sem taka gildi 1. janúar 2012

02.01.2012

Varðar m.a. innflytjendur, útflytjendur, tollmiðlara og hugbúnaðarhús, sem selja eða þjónusta hugbúnað til tollskýrslugerðar, auk annarra.

Almennt gildir að breytingarnar taka til allra vara sem ótollafgreiddar eru 1. janúar 2012

Ábendingar
Um útflutning gildir: Í útflutningsskýrslu skal nota tollskrárnúmer og tollafgreiðslugengi sem í gildi er tollafgreiðsludag útflutningsskýrslunnar, en þó skal aldrei miða við nýrri dag en brottfarardag vörusendingar sem útflutningsskýrslan tekur til.

Þegar leiðrétta eða breyta þarf aðflutningsskýrslum vegna þegar tollafgreiddra vörusendinga, t.d. vegna of- eða vangreiddra gjalda, þá bera þær leiðréttingar aðflutningsgjöld skv. tollskrá, lögum og reglugerðum sem í gildi voru tollafgreiðsludaginn eða e.a. bráðabirgðatollafgreiðsludaginn og nota skal tollafgreiðslugengi þess dags. Gjöld og tollafgreiðslugengi innfluttra hraðsendinga miðast við þann dag þegar tollgæsla veitti leyfi til að afhenda sendinguna innanlands (langoftast komudagur sendingar til landsins)

Á vef Tollstjóra má skoða aðflutningsgjöld og taxta þeirra fyrir og eftir áramót með því að velja viðeigandi viðmiðunardagsetningu.

1.
Breyting á tollskrá
Breytingin er skv. auglýsingu nr. 154/2011 um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88 18. maí 2005, m.s.br. (A-deild Stjórnartíðinda). Breytingarnar eru umfangsmiklar en varða inn- og útflytjendur mismikið. Nánari upplýsingar eru á þessari vefsíðu Breytingar á tollskrá 1. janúar 2012.

Unnt er að fletta upp gjöldum og skilmálum tollskrárnúmera á þessari slóð 

2.
Kolefnisgjöld á fljótandi jarðefnaeldsneyti, K2, K3 og K5, hækka
Nefnd kolefnisgjöld verða þessi:
K2   Kolefnisgjald. Gas- og díselolía (5,75 kr/lítra)
K3   Kolefnisgjald. Bensín (5,00 kr/lítra)
K5   Kolefnisgjald. Brennsluolía (7,10 kr/kg)

Heimild: 15. gr. laga nr. 164/2011 um ráðstafanir í ríkisfjármálum.

3.
Vörugjald af bensíni, LB gjald, hækkar
Gjaldið verður:
LB   Vörugjald af bensíni - Hækkar úr 23,86 kr/lítra í 24,46 kr/lítra.

Heimild: 16. gr. laga nr. 164/2011 um ráðstafanir í ríkisfjármálum.

4.
Sérstakt vörugjald af eldsneyti, C1 og C2 gjöld, hækka
Gjöldin verða:
C1   Blýlaust bensín - Hækkar úr 38,55 kr/lítra í 39,51 kr/lítra
C2   Annað en blýlaust bensín - Hækkar úr 40,85 kr/lítra í 41,87 

Heimild: 17. gr. laga nr. 164/2011 um ráðstafanir í ríkisfjármálum.

5.
Olíugjald, C3 gjald, fleiri gjaldskyld tollskrárnúmer og útvíkkun gjaldsviðs
Gjaldið, C3, olíugjald, 54,88 kr/lítra á gas- og dísilolíu til ökutækja og nú einnig á steinolíu til ökutækja. Leggst nú á vöru í tollskrárnúmerum 2710.1911, 2710.1912 og 2710.1919 auk tollskrárnúmers 2710.1930, sem áður var eitt gjaldskylt. 

Heimild: 18. gr. laga nr. 164/2011 um ráðstafanir í ríkisfjármálum.

6.
Áfengisgjöld, VX, VY og VZ, hækka
Áfengisgjöld verða:
VX  Áfengisgjald 91,33 kr/cl af vínanda umfr. 2,25% - Öl o.fl.
VY   Áfengisgjald 82,14 kr/cl af vínanda umfr. 2,25% - Vín
VZ   Áfengisgjald 106,93 kr/cl af vínanda umfr. 0% - Annað áfengi 

Heimild: 24. gr. laga nr. 164/2011 um ráðstafanir í ríkisfjármálum.

7.
Tóbaksgjöld, innflutningur til einkanota, T1 og T2 hækka
Tóbaksgjöldin verða:
T1   Tóbaksgjald - vindlingar (459,29 á hvern pakka; 20 vindl.)
T2   Tóbaksgjald - annað tóbak (22,96 kr/gramm) grömm í lítrareit vörulínu í E1 ebl. 

Heimild: 26. gr. laga nr. 164/2011 um ráðstafanir í ríkisfjármálum.

8.
Vörugjald af ökutækjum, M6, M7, M8 og M9 gjöld hækka
Breytingarnar eru þessar:
M6    Vörugjald af ökutækjum, CO2 losun 181-200, hækkar úr 36% í 41%
M7    Vörugjald af ökutækjum, CO2 losun 201-225, hækkar úr 44% í 50%
M8    Vörugjald af ökutækjum, CO2 losun 226-250, hækkar úr 48% í 54%
M9    Vörugjald af ökutækjum, CO2 losun  yfir 250, hækkar úr 52% í 59% 

Heimild: Ákvæði til bráðabirgða XII, 2. mgr., laga nr. 29/1993 um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., m.s.br.

9.
Flutningsjöfnunargjöld á olíuvörum (eldsneyti), J* gjöld, taxtar breytast
Gjöldin verða þessi:
J1    Bifreiðabensín, var 0,40 kr. á lítra og verður 0,43 kr. pr/lítra
J2    Flugsteinolía (þotueldsneyti), var 0,08 kr. á lítra og verður 0,14 kr. pr/lítra
J3    Gasolía, var 0,82  kr. á lítra og verður 0,88 kr. pr/lítra
J4    Flugvélabensín, var 0,25 kr. á lítra og verður 0,11 kr. pr/lítra
J5    Aðrar olíur og blöndur til brennslu, var 0,01 kr. á kg og verður 0,10 kr. pr/kg 

Heimild: Auglýsing nr. 1248/2011 um flutningsjöfnunargjald á olíuvörum

10.
Reglugerðir um tollkvóta
Tollskrárnúmer í eftirtöldum þremur reglugerðum um tollkvóta taka mið af þeirri tollskrá, viðauka I við tollalög nr. 88/2005, sem í gildi var fyrir áramót

Reglugerð nr. 1102/2011 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl.
Birt 5. desember 2011
Gildir fyrir tímabilið 01.01. - 31.12.2012 

Reglugerð nr. 1103/2011 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Evrópubandalaginu.
Birt 5. desember 2011
Gildir fyrir tímabilið 01.01. - 31.12.2012 

Reglugerð nr. 1104/2011 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi.
Birt 5. desember 2011
Gildir fyrir tímabilið 01.01. - 31.12.2012 

Tollskrárnúmer í eftirtöldum fjórum reglugerðum um tollkvóta taka mið af þeirri breyttu tollskrá, viðauka I við tollalög nr. 88/2005, sem tók gildi 1. janúar 2012:

Reglugerð nr. 1178/2011 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á rjúpum.
Birt 22. desember 2011
Gildir fyrir tímabilið 01.01 - 31.12.2012 

Reglugerð nr. 1179/2011 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á frjóeggjum, soðnum eggjum og eggjarauðum.
Birt 22. desember 2011
Gildir fyrir tímabilið 01.01 - 31.12.2012 

Reglugerð nr. 1180/2011 um tollkvóta á grænmeti og lækkun tolla.
Birt 22. desember 2011
Gildir fyrir tímabilið 01.01 - 31.12.2012 

Reglugerð nr. 1236/2011 um úthlutun á opnum tollkvótum á nautgripakjöti.
Birt 28. desember 2011
Gildir fyrir tímabilið 01.01 - 30.06.2012 

11.
Breytingar á gjalddögum uppgjörstímabila vegna skuldfærslu aðflutningsgjalda við tollafgreiðslu; fyrirkomulag fært til fyrra horfs frá og með 1. janúar 2012
Á árinu 2011 hafa verið í gildi tímabundið lengri greiðslufrestir (fleiri gjalddagar) á aðflutningsgjöldum, sbr. þessi tilkynning á vef Tollstjóra frá 19. maí 2011. 

Frá og með 1. janúar 2012 taka fyrri reglur um uppgjörstímabil og gjalddaga aðflutningsgjalda gildi.

Þeir innflytjendur og tollmiðlarar sem stunda SMT/EDI tollafgreiðslu þurfa sérstaklega að skoða þessar breytingar m.t.t. þess að hugbúnaður þeirra til rafrænnar tollafgreiðslu virki rétt, þ.e. móttaka CUSTAR skeyta og úrvinnsla upplýsinga í þeim. CUSTAR skeytin eru tilkynningar frá Tollstjóra um tollafgreiðslu vörusendingar og skuldfærslu aðflutningsgjalda.

12.
Tollskrárlyklar til nota í tollskýrslugerðarhugbúnaði
Tollskrárlyklar, sem taka gildi 1. janúar 2012, eru aðgengilegir á vef Tollstjóra á þessari slóð.
http://www.tollur.is/tollskrarlyklar 
Sérstaklega er bent á að nauðsynlegt er að sækja einnig svokallaða hlutfallstöflu BV og BX úrvinnslugjalda af pappa, pappírs- og plastumbúðum. Sjá nánar vefsíðu tollskrárlykla. 

13.
Nánari upplýsingar
Um tæknilega framkvæmd: TTU-deild, tölvukerfi tollafgreiðslu og upplýsingavinnsla, hjá Tollstjóra
ttu[hja]tollur.is eða TTU þjónustuvakt, sími: 560 0505 

Um tollamál og tollafgreiðslu: Upplýsingaveita tollasviðs Tollstjóra, sími 560 0315

 

Kynntu þér líka þessa frétt um breytingar á tollskrá

Til baka