Tollmiðlaranámskeið Tollskóla ríkisins

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tollmiðlaranámskeið Tollskóla ríkisins

21.12.2010

Tollmiðlaranámskeið Tollskóla ríkisins hefst 17. janúar 2011. Á námskeiðinu er farið yfir lög og reglur sem gilda um tollmeðferð vöru, þar á meðal tollflokkun, tollskýrslugerð, meðferð ótollafgreiddrar vöru, ábyrgð á greiðslu aðflutningsgjalda og upplýsingum sem veittar eru tollyfirvöldum, og reglum um greiðslufrest aðflutningsgjalda.

Athygli er vakin á því að starfsmenn tollmiðlara, sem annast gerð tollskýrslna og samskipti við tollyfirvöld vegna þeirra, skulu hafa sótt námskeiðið.

Nánari upplýsingar:

Dagsetning:    17. janúar - 23. febrúar 2011

Tími:               kl. 13.00 - 16:00

Lengd:            100 kennslustundir

Staður:            Tryggvagata 19.

Kostnaður:      125.000 kr.

Skráningarfrestur er til 10. janúar 2011

Nánari upplýsingar veitir Gunnlaug Hartmannsdóttir starfsþróunarstjóri í síma 5600-551 / 8422551, netfang: gunnlaug.hartmannsdottir@tollur.is

Skráið ykkur hér

Til baka