Tollgæslan haldlagði lifandi dýr á Keflavíkurflugvelli

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tollgæslan haldlagði lifandi dýr á Keflavíkurflugvelli

05.10.2010

Í síðasta mánuði lagði tollgæslan hald á þrjár lifandi kóngulær af Tarantúluætt en auk þess  fundust tveir Emperial sporðdrekar í farangri hjá farþega sem átti leið um flugvöllinn.  Í framhaldi var gerð  líkamsleit á viðkomandi og fundust þá  fjórir snákar innanklæða hjá honum.  Dýrin voru haldlögð og farið var með þau samdægurs til förgunar að Keldum.

Lifandi skriðdýr og skordýr sem fundust á farþega í Leifsstöð

Innflutningur á skriðdýrum til Íslands er bannaður. Bannið er til komið vegna alvarlegra sjúkdómstilfella í fólki af völdum salmonellasmits sem rekja má með ótvíræðum hætti til þessara gæludýra.

Á vef Matvælastofnunar eru ýtarlegar upplýsingar um leyfi og bönn vegna innflutnings lifandi dýra.

Lifandi snákar sem fundust á farþega í LeifsstöðLifandi skordýr sem fundust á farþega í Leifsstöð
Könguló í LeifsstöðSporðdrekar sem fundust á farþega í Leifsstöð

Til baka