Tilkynning nr. 8/2008 til tollstjóra og annarra er málið varðar.

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tilkynning nr. 8/2008 til tollstjóra og annarra er málið varðar.

27.10.2008

Ný stjórnvaldsfyrirmæli og breytingar á stjórnvaldsfyrirmælum, birt í B- deild Stjórnartíðinda.

Tollstjórinn í Reykjavík vekur athygli á eftirtöldum stjórnvaldsfyrirmælum og breytingum sem orðið hafa á stjórnvaldsfyrirmælum varðandi tollamál.

Auglýsing nr. 935/2008 um bann eða takmörkun á innflutningi og varúðarráðstafanir vegna matvæla sem innihalda mjólk eða mjólkurafurðir sem upprunnar eru í Kína eða sem fluttar eru frá Kína.

Auglýsing þessi er sett með stoð í 27., 28. og 29. gr. sbr. 18. gr. laga um matvæli, nr. 93/1995, með síðari breytingum og með hliðsjón af ákvörðun nr. 2008/575/EB. Auglýsingin öðlaðist gildi við birtingu 7. október 2008.

27. október 2008

Tollstjórinn í Reykjavík

Tilkynningin er hér í pdf skjali (55KB)

Til baka