Breyting á reglugerð 630/2008 um ýmis tollfríðindi

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Breyting á reglugerð 630/2008 um ýmis tollfríðindi

03.07.2008

Fjármálaráðuneyti hefur gefið út reglugerð nr. 634/2008 um breytingu á reglugerð nr. 630/2008 um ýmis tollfríðindi.

REGLUGERÐ
um breytingu á reglugerð nr. 630/2008, um ýmis tollfríðindi.

1. gr.

3. tölul. A. liðar 1. mgr. 4. gr. orðast svo:

1 lítra af sterku áfengi eða 1,5 lítra af léttvíni og 6 lítra af öli.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 2. mgr. 6. gr. tollalaga, nr. 88/2005, með síðari breytingum, 1. mgr. 49. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og 3. mgr. 6. gr. laga nr. 96/1995, um gjald af áfengi og tóbaki, með síðari breytingum, til þess að öðlast gildi þegar í stað.

Fjármálaráðuneytinu, 1. júlí 2008.

F. h. r.

Maríanna Jónasdóttir.

Lilja Sturludóttir.

B-deild - Útgáfud.: 1. júlí 2008

Sjá nánar Stjórnartíðindi

Til baka