Vefútgáfa af tollahandbók I 2007
20.12.2007
Nú er hægt að skoða tollahandbók I 2007 á vefnum. Handbókin inniheldur upplýsingar um ýmis lög og stjórnvaldsreglur um tollamál sem voru í gildi 1. desember 2007.
Handbókin er til hagræðis fyrir þá sem vinna við framkvæmd tollheimtu og tolleftirlits. Ennfremur getur hún komið að almennum notum og greitt götu þeirra, sem vilja kynna sér reglur á sviði tollamála.
Handbókin er 1005 blaðsíður og er eingöngu gefin út rafrænt, einnig er tollahandbók I 2006 aðgengileg á vefnum. Hægt er að leita í skjölunum auk þess sem efnisyfirlit og yfirlit laga og stjórnvaldsreglna innihalda tengla í nánari upplýsingar.
Til baka