Vefspjall tollstjóra fyrir innheimtumál opnað
23.06.2005
Þjónustuver innheimtusviðs hefur tekið í notkun samskiptakerfið Svarbox®. Kerfið bíður uppá beint samband við þjónustufulltrúa tollstjóra.
Allir gestir vefsins geta notað vefspjallið og þar er hægt að fá svör við spurningum sem tengjast innheimtu opinberra gjalda hjá tollstjóranum í Reykjavík.
Vefspjallið opnar að auki möguleika á beinum samskiptum milli þjónustufulltrúa tollstjóra og heyrnarlausra og annarra viðskiptavina sem geta ekki eða eiga erfitt með að tala í síma.
Vinna við innleiðingu sambærilegs kerfis fyrir tollheimtusvið er vel á veg komin.
Til baka