Áríðandi tilkynning
Áríðandi tilkynning vegna EDI/SMT-tollafgreiðslu hjá tollstjórum og EDI/SMT- skeytasendinga almennt
Núna, mánudagsmorguninn 21. febrúar 2005, varð uppákoma hjá viðskiptavini tollstjóra sem fólst í því að viðskiptavinurinn sendi mörg þúsund EDI-skeyti til tollstjóra, sem nær stöðvar gagnastreymi í tölvukerfum vegna álags.
Afleiðingarnar eru þessar:
Í fyrsta lagi getur verið að þeir aðilar, inn- og útflytjendur, flutningsmiðlarar og farmflytjendur sem sendu frá sér EDI-skeyti til tollstjóra fyrir kl. 11 í morgun, þurfi að senda þau aftur. Skeyti send eftir þann tíma þarf ekki að senda aftur. Skeyti frá viðskiptavinum verða lengur að berast inn í Tollakerfi hjá tollstjóra en venjan er.
SMT-tollafgreiðsla mun taka lengri tíma í dag vegna þessa. Svarskeyti frá tollstjóra munu taka lengri tíma að berast viðtakanda en venjan er. Ekki á að þurfa að endursenda svarskeyti úr Tollakerfi.
Afgreiðslutími EDI/SMT-skeyta hjá tollstjóra mun batna eftir því sem líður á daginn.
Til baka