Grunnnámskeið í tollskýrslugerð

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Grunnnámskeið í tollskýrslugerð

10.12.2004

Fyrirtæki og einstaklingar sem fást við inn- og útflutning athugið

 

Tollskýrslugerð

Tollstjórinn í Reykjavík gengst fyrir grunnnámskeiði í tollskýrslugerð.

Tollskýrslugerð v/innflutnings (20 tímar)
24. janúar-28. janúar 2005 frá kl. 8.10 – 11:55. 

Þátttakendur verða færir um að gera tollskýrslur og öðlast grunnskilning á helstu reglum er varða innflutning.
Farið verður yfir helstu fylgiskjöl og útreikninga, uppbyggingu tollakerfis, upprunavottorð, reglur o.fl.

Tollskýrslugerð vegna útflutnings (12 t.)
31. janúar -2. febrúar 2005 frá kl. 8.10 – 11:55.

Þátttakendur verða færir um að gera tollskýrslur og öðlast grunnskilning á helstu reglum er varða útflutning.
Farið verður yfir útfyllingu og útreikninga útflutningsskýrslunnar, uppbyggingu tollakerfis, upprunavottorð, reglur o. fl.

Þátttaka (hámark 17 þátttakendur á hverju námskeiði) tilkynnist fyrir 17. janúar 2005 til tollskólans að Skúlagötu 17 í síma 5600 557, eða á netfangið tollskoli@tollur.is.

 

Reykjavík, 13. desember 2004

Tollstjórinn í Reykjavík

Til baka