Tollstjórinn í Reykjavík gengst fyrir grunnnámskeiði í tollskýrslugerð
15.05.2004
Fyrirtæki og einstaklingar sem fást við inn- og útflutning athugið.
- Tollskýrslugerð vegna útflutnings (12 tímar) 2. - 4. júní nk. frá kl. 8.10 – 11:55.
Þátttakendur verða færir um að gera tollskýrslur og öðlast grunnskilning á helstu reglum er varða útflutning.
Farið verður yfir útfyllingu og útreikninga útflutningsskýrslunnar, uppbyggingu tollakerfis, upprunavottorð, reglur o. fl.
- Tollskýrslugerð v/innflutnings (20 tímar) 7. - 11. júní nk. frá kl. 8.10 – 11:55.
Þátttakendur verða færir um að gera tollskýrslur og öðlast grunnskilning á helstu reglum er varða innflutning.
Farið verður yfir helstu fylgiskjöl og útreikninga, uppbyggingu tollakerfis, upprunavottorð, reglur o.fl.
Þátttaka (hámark 17 þátttakendur á hverju námskeiði) tilkynnist fyrir 25. maí n.k. til tollskólans að Skúlagötu 17 í síma 5600 557/551, eða á netfangið johann.olafsson@tollur.is.
Reykjavík, 15. maí 2004
Tollstjórinn í Reykjavík
Til baka