Tilkynning vegna VEF-tollafgreiðslu og breytinga á reit 37 - Tollmeðferð
18.08.2003
Sú breyting hefur verið gerð á VEF-útflutningsskýrslu að bætt hefur verið inn í fellilista reits 37 fyrir tollmeðferð vöru kóda 15: Áður innfluttar vörur endurseldar til útlanda.
Leiðbeiningar fyrir þennan reit sem útflytjandi getur kallað fram við gerð útflutningsskýrslu á VEF líta þá svona út:
37 Tollmeðferð
Hér skal tilgreina tollmeðferð vöru í vöruliðnum með því að velja úr fellilista einn eftirfarandi lykla, er tilgreina þá tollmeðferð sem heimil er í VEF-útflutningsskýrslu.
Lykill | |
Venjulegur útflutningur | |
10 | Sala á íslenskum vörum til útlanda |
11 | Vörur sendar án endurgjalds, gjafir, prentvara o.fl. |
Endurseldar vörur | |
15 | Áður innfluttar vörur endurseldar til útlanda |
Tímabundinn útflutningur | |
20 | Vara til tímabundinna nota erlendis í allt að 12 mánuði |
Tollstjórinn í Reykjavík
Tölvukerfi tollafgreiðslu og upplýsingavinnsla
ttu@tollur.is
Til baka