Hvað er tollverð?
Tollverð vöru (CIF) = verð vöru + flutningskostnaður + tryggingakostnaður + allur annar kostnaður sem leggst á verð vörunnar erlendis og á leið til landsins.
Sem sagt verð vörunnar hingað komið, aðflutningsgjöld eru reiknuð af tollverði vörunnar.
Tollverð er skilgreint í 14. og 15. grein tollalaga nr. 88/2005 og 52. - 70. grein reglugerðar nr. 1100/2006.
Erlendur virðisaukaskattur eða söluskattur skal vera hluti af tollverði, nema sýnt sé fram á að hann hafi ekki verið greiddur, eða hann hafi verið endurgreiddur erlendis.