Gjafir til einstaklinga
Í tollalögum er heimild til undanþágu frá greiðslu aðflutingsgjalda (innflutningsgjalda) af gjöfum til einstaklinga.
Texti á þessari síðu er einfaldaður, lagatextinn er það sem gildir við tollafgreiðslu.
Þú getur ekki notið undanþágunnar ef þú:
- Biður fyrirtæki eða einhvern sem býr eða er í útlöndum að senda þér vörur sem gjöf.
- Sendir sjálfum þér gjöf frá útlöndum.
Uppfylla þarf ákveðin skilyrði:
- Einstaklingur sem er með lögheimili eða fasta búsetu þarf að senda gjöfina hingað eða taka hana með sér til landsins.
- Gjöfin þarf að vera gefin af sérstöku tilefni, þó ekki í atvinnuskyni.
- Til dæmis getur verið um að ræða afmælisgjafir, jólagjafir, fermingargjafir eða brúðkaupsgjafir.
- Verðmæti gjafarinnar þarf að vera innan þeirra marka sem fram koma í lögunum (nú 13.500 kr).
- Ef gjöfin er dýrari reiknast innflutningsgjöld af þeirri upphæð sem umfram er.
- Brúðkaupsgjafir geta verið dýrari, Tollstjóra er falið að meta hvort um hæfilega gjöf sé að ræða.
- Flytja þarf brúðkaupsgjafir til Íslands innan sex mánaða frá brúðkaupi.
- Viðtakandi þarf að sýna fram á tengsl við sendandann og að um gjöf af sérstöku tilefni sé að ræða.
- Fylgi reikningur ekki áætlar Tollstjóri verðmæti gjafarinnar.
- Sé mörgum gjöfum pakkað saman er mikilvægt að fram komi í fylgiskjölum að margar gjafir séu í pakkanum svo hver og ein gjöf njóti undanþágu.
- Áfengi og tóbak njóta ekki undanþágu sem gjafir.