Rautt eða grænt hlið

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Rautt eða grænt hlið

Það borgar sig að fara í rauða hliðið og greiða lögbundin aðflutningsgjöld ef þú hefur keypt vörur sem kosta meira en sem nemur tollfríðindum (í dag 88000). Skoðaðu dæmið hér að neðan:

Þú kaupir fartölvu erlendis sem kostar $799 = 105212 (gengi USD=131,68) og kemur með hana heim sem ferðamaður. Sömu reglur gilda um allar verslunarvörur, en gjöld á þeim geta verið mismunandi fartölva er hér aðeins tekin sem dæmi.

Fartölva sem kostar 799 dollara

Þú ferð í rauða hliðið

Þú ferð í græna hliðið

 Þú ferð í rauða tollhliðið  Þú ferð í græna tollhliðið
Tollverð vörunnar + aðflutningsgjöld Tollverð vörunnar + aðflutningsgjöld + sekt

109405

159988

Skoðaðu hvernig þetta er reiknað út:

Í rauða hliðinu getur þú nýtt tollfríðindi sem þú átt rétt á sem ferðamaður.

Hvernig eru tollfríðindi reiknuð?

Með því að draga tollfríðindi frá kaupverði getur þú notað reiknivélina til að reikna um það bil hvað vara muni kosta ef þú kaupir hana erlendis og kemur með hana til landsins sem ferðamaður.

Dæmi (miðað við gengi, gjöld og tollfríðindi 27. febrúar 2015):

Lýsing Upphæð
Fartölva kostar erlendis USD 799 * 131,68 (tollverð * gengi) 105212
Þú dregur tollfríðindi frá - 88000
Sláðu töluna sem út kemur í reiknivélina og veldu réttan flokk: 17212
Reiknuð aðflutningsgjöld samkvæmt reiknivél  4193
Fartölvan kostar þig því samtals 105212 + 4193 (kaupverð + aðflutningsgjöld) 109405

 

Þegar þú kemur heim ferðu í "rauða hliðið" með vöruna sem þú keyptir ásamt reikningi og greiðir aðflutningsgjöldin.

Þó hámark tollfríðinda sé 88000 krónur er ekkert því til fyrirstöðu að versla fyrir hærri upphæð erlendis, en þá má ekki gleyma að fara í rauða hliðið þegar heim kemur og greiða lögbundin aðflutningsgjöld.

Hjá ferðamönnum er flutningskostnaður ekki reiknaður, hinsvegar þurfa áhafnir skipa og flugvéla að reikna með flutningskostnaði.

 

Þegar ferðast er með dýrar vörur er gott að hafa meðferðis reikning til að geta sýnt fram á verðmæti þeirra.

Síðast uppfært/breytt febrúar 2015

Hvað gerist í græna hliðinu ef ég er með varning umfram verðmætismörk?

Farir þú í gegnum "græna hliðið" með varning meðferðis sem er að verðmæti meira en reglur um tollfríðindi segja til um, þá telst það vera smygl og brot á tollalögum.

Dæmi (miðað við gengi, gjöld og tollfríðindi 27. feb 2015):

Lýsing Upphæð (ISK)
Fartölva kostar erlendis USD 799 * 131,68 (tollverð * gengi) 105212
Reiknuð aðflutningsgjöld (notaðu reiknivélina til að reikna þau) 25477
Sekt ef um brot er að ræða 25477 * 1,15 (aðflutningsgjöld með 15% álagi) 29299
Fartölvan kostar þig því samtals (105212 + 25477 + 29299) 159988

 

  • Þú þarft að greiða aðflutningsgjöld og að auki sekt sem er aðflutningsgjöld með 15% álagi
  • Þú lendir á sakaskrá ef fjárhæð sektar við tollalagabroti þínu nemur hærri upphæð en 50000 kr.
  • Varningurinn er haldlagður af tollgæslu og er í vörslu hennar þar til gjöld og sekt hafa verið greidd
  • Tollalagabrot í grænu hliði getur varðað upptöku varnings
  • Auk greiðslu sektar þá er öll bannvara gerð upptæk, en einnig getur komið til upptöku almenns verslunarvarnings ef ætla má að hann sé til endursölu og eins ef viðkomandi er farmaður eða flugliði

 

Síðast uppfært/breytt febrúar 2015

Var efnið hjálplegt?Nei
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Tollstjóra. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?
Ef óskað er eftir svari vinsamlega notið: Hafðu samband eða Hrós, ábendingar og kvartanir